hugsanir heimasætunnar

tíu knús á dag kemur skapinu í lag :D

01.05.2008 20:21:32 / Vafi

úps

ég gefst upp! er hætt að blogga...byrja kannski aftur í haust eða einhverntíman...


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 20:05:18 / Vafi

Nýtt ár..

ný markmið! Eða svo segir fólk...

Ákvað að blogga þar sem ég hef EKKERT að gera, frekar slakt laugardagskvöld.. En já jólin komu eins og venjulega þó að jólaskapið fari minnkandi með hverju árinu, pæling að fara, til úgglanda næstu jól og sleppa við þetta bévítans jólastress sem gerir allt kvenfólk (allavega það sem er nálægt mér) alveg skoppandi vitlaust. En annars héldum við jólin í fyrsta sinn á EGS þetta ár hjá Beggu sys og co. og það var alveg ljómandi fínt!  Fékk marga fína pakka með mörgum fínum gjöfum og borðaði eins og maginn þoldi.

Á áramótunum var ég veik:frown: og svaf bara vært mest kvöldið en vaknaði nú um 11 til að sjá skaupið og horfa á flugeldana...var svo bara sofnum aftur kl 2 þeg ég kom heim frá EGS. Viðhengið strauk til Hafnar í Hornafirði þannig að ég hafði bara ekkert að gera..piff.

Svo er skolinn bara að byrja á mánudaginn og ég flyt á vistina á morgun! jeij! Í fyrsta skipti á minni skólagöngu sem mig hlakkar til að byrja aftur í skólanum.. þessi jól eru búin að vera alltof róleg fyrir minn smekk! er farin að hlakka til að hafa samskipti við aðrar mannsveskjur en fjölskylduna(vona að fjölskyldumeðlimir taki þessu ekki illa :|

yfir og út...Tíbrá


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 23:30:28 / Vafi

fly on the wings of love...

JEIJ!!! ég náði öllum prófunum mínum! Vil koma sérstökum þökkum til Gústa og jóns inga sem að hjálpuðu mér að ná stærðfræði áfanganum mínum!! :P já það þýðir að ég þarf aldrei aftur að koma nálægt stærðfræði þar sem að það eru ekki fleiri skyldu stærðfr. áfangar á félagsfræðibraut! En já fyrir forvitna fólkið þá voru þetta einkunnirnar mínar: 6-stæ, 8-ens og franska, 9-uppeldisfr, sálfr, ísl og matreiðsla og 10 í íþr. Svo var ég að reikna meðaleinkunnirnar mínar í dag frá seinustu 2 önnum og þessari og þær hafa hækkað um eina kommu hverja önn...er núna8,5 og ef ég held því áfram verð ég nú bara nokk sátt með sjálfa mig þegar ég útskrifast :P (Glætan að það gerist samt!)

Annars er lífið bara mjög gott þessa dagana..er yfirfjósastúlka þetta jólafríið:P hehe já þið sem eruð ekki vön sveitasælunni þá þýðir þetta að ég vakna svona á milli 10 og 11 og fer út í fjós að gefa kálfunum og gefa hey og spjalla við róbótann sem að sér svo um að mjólka þessar blessuðu beljur...gott líf það.. svo er ég bara búin að vera að þrífa herbergið mitt og gera konfekt sem að virðist samt alltaf hverfa um leið og það er orðið til:frown: ..hihi veit nú reyndar hver sökudólgurinn í því er :P

er'ett ekki gott í bili?...


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 10:52:31 / Vafi

Prófblogg segiði...

já ég er sumsé búin í 3 prófum, íþrótta, uppeldisfr og ensku og er að fara í frönsku kl 1 á eftir! Þá á ég bara eftir 3. Stærðfr á morgun8|:frown::^) held ég nái flestum nema kannsku frösnku og ensku...kemur allt í ljós eftir nokkra daga... Annars hefur lítið gerst hjá mér, er bara búin að vera að reyna að læra síðan á föstudaginn en einbeitingin hefur ekki alveg verið að vinna með mér:$

Svo er ég að fara í klippingu 12 des!!! gaman af því... og svo er held ég bara málið að fara að þrífa herbergið sitt, baka smákökur og konfekt og láta sig svo hverfa út í fjós og fjárhús og láta hina kvenmennina gera það sem eftir er af jólaundirbúningnum hihihi. ´

En svo ég fari nú út í annað þá keypti ég mér kort í ræktina og sund og ég er eiginlega með samviskubit yfir því hvað ég notaði það lítið:$ Ég keypti mér meira að segja bikiní en það má telja á annari hendi þau skipti sem ég hef farið í sund... en þetta virkar fram að áramótum..held ég.. svo að spurning um að fara bara í sund reglulega fram að jólum...hummm já ég veit, ekki mjög líklegt, en ég meina það sakar ekki að vera bjartsýnn :P

En jæja, ætli ég fari ekki að gera e-ð af viti þangað til ég fer í próf....Sía 


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 20:14:08 / Vafi

Je m´appelle tíbrá

já þetta er nokkurnveginn það eina sem ég kann í frönsku og ég er í 203! já ég held að ég eigi nokkuð mikið eftir að falla...:( snökt, en já ég er búin að vera e-h hálf dauð þessa vikuna.. er reyndar búin að vera ógó dugleg og fara 2x í sund og er með fokk miklar harðsperrur eftir það!

Svo fór ég í mat til Beggu sys á mánudaginn og fékk gg góðan kjúklingarétt...ALLTAF gott að borða hjá henni!:haha: Agætis getnaðarvörn að koma þangað af og til í vikunni og passa litlu frændur sína;)

Annars bara endalaust af prófum í þessum skóla! piff en svo er 1. des eftir rúma viku og mig vantar alveg Sárlega föt!

en annars hef ég ekki meira að segja

sia! 


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 09:22:51 / Vafi

blogg...

Mhm..já blogg segiði. Einhverntímann fékk ég þá skrýtnu flugu í hausinn að ég hélt að ég myndi nenna að blogga reglulega...það hefur eitthvað breyst! Annars er svosum allt nokkurnveginn eins og það var seinast.. skólinn ágætur og ég er farin að skilja meira en ég gerði sem að hlítur að vera gott.

Óvissuballið var einhverja helgina í október, ekkert spes ball, mikið fyllerí og vanalegheit.

Seinustu helgi var stelpukvöld hjá okkur vinkonunum en vantaðu reyndar 4 meðliminn sem er staddur í mörg þúsundmilljónkílómetramílu fjarlægð frá EGS á stað sem nefnist Kína! En við horfðum á Lion king 1 (sem er örugglega besta teiknimynd í heimi), Hundalíf(sem er ótrúlega ekki mjög skemmtileg mynd en hefur sína gullmola s.s Tibbs liðþjálfi sem er KÖTTUR! ég sem hata ketti!) og tomma og jenna! Já svo var auðvitað étið tonn af nammi og farið í singstar frá 1-3 og svo talað í 2 tíma og sofnað um 5 leytið...Svo er Dagmar komin með bílpróf og maður nýtir sér það auðvitað í tíma og ótíma :P... jújú ég fer alveg að taka bílprófið....:$

Svo gerðist það sem að gerist í lífi allra...amma mín dó. Hún sagði mér seinasta haust að hún ætlaði sér nú að tóra yfir næstu kosningar(sem hún og gerði) og þegarþær voru búnar sá hún að það þýddi víst ekkert annað en að tóra líka yfir 90 ára afmælið sitt(sem hún gerði líka) fleiri takmörk hafði hún ekki svo að ég viti allavega þannig að ég  trúi því að hún hafi farið nokkuð sátt.

En best að vinda sér í næsta mál!! Klamedía virðist vera að „ganga“  í ME ... já ekki hægt að segja annað þar sem að 5 hver manneskja virðist vera komin með þetta...nú hugsið þið systur mínar örugglega „jesús! Er Tíbrá komin með klamedíu...ég vissi alltaf að hún átti ekki að byrja með þessum jóni“..en nei ég hef nú alveg sloppið við þetta svo að þið getið andað léttar :haha:

Svo er Begga sys og famelí flutt í EGS , það verður án efa skemmtilegt að hafa þau hér!

Svo var ég að koma úr íþróttum fyrir nokkrum mínútum og flýtti mér eins og ég gat í sturtu til að verða nú ekki of sein í sálfræði...en neinei... þar sem að ég er að henda af mér skónum verður mér litið snögglega á töfluna/skjáinn og sé þar að Arnar er veikur í dag!...urgur!:frown: En það er bara betra...þarf ekki að mæta nema í 2 tíma í viðbót í dag! :haha:

Já annars man ég nú ekki eftir neinu meira...enda komið ágætt af blaðrinu í mér. Vil samt benda ykkur á 2 síður, annars vegar síðuna hjá Mörtu í Kína www.meikina.bloggar.is og hinsvega síðuna hjá Sigga Max og Silju (systir Láru) en þau eru í heimsreisu þetta árið www.siggiogsilja.bloggar.is


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 21:26:46 / Vafi

skóli, löng helgi, djamm???

hæ...já seinustu helgi fór ég að smala á laugardaginn og auðvitað fór ég á hesti eins og sannri hestakellu sæmir!...get ekki sagt að ég hafi verið eins hress með það næstu daga á eftir þar sem að allgóðar hasssssperrur gerðu vart við sig í baki, nára og lærum. Um kvöldið fórég í EGS og rúntaði með Jón inga og dagrúnu. Það var nákvæmlega allt dautt í bænum svo að um 11 leytið fórum við niðurá Reyðarfjörð og rúntuðum það í smá... Þar sem að við erum ekki alveg normal fólk þá fórum við í fresbee á planinu hjá Húsasmiðjunni!  Hvort sem þið trúið því eða ekki þá var það gg stuð:haha:

Dagrún var driver og við jón drukkum smá...annars er ég alveg vonlaus í því að drekka þaar sem að mér verður alltaf óglatt eftir 1 breezeer eða svo.:$...En tópas virkar vel :haha:

núna verður löng helgi í skólanum og ég hef barasta engin plön um hvað ég ætla að gera8| Allir á leiðinni í AK eða RVK nema nokkrir sem að ætla að mygla á EGS..stuð ?

Svo er óvissuball 12 okt !!! jeijjjjjj !!!  það verður stuð! ég held að málið sé alveg að fara í rútu og gera grín af busunum sem að verða á ****gatinu...sé allavega ekki fram á að neinn nenni að keyra:$...

jamm....segi þetta gott í bili.. 


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 19:22:57 / Vafi

hér veit ég aldrei hvað ég á að skrifa...

hæbb... það hefur alveg voða lítið gerst síðan að busaballið var...held ég allavega..

akkúrat þessa stundina er ég með einhverja minniháttar pest sem einkennist af hálsbólgu, svima og hausverk en samt er verið að reyna að draga mann í EGS. En þar sem að ég nenni aungvan veginn þá ætla ég barasta að kúra ein heima með koddan frá Dagrúnu!

Ég er farin að sjá að helgarnar eru e-h óvenju fáar þessa önnina :$ það er jú smalamennskur næstu helgi, síðan er óvissuball, ég ætla að reyna að komast til RVK eina helgina að kaupa og kaupa föt og svo til Ak að djamma...o.fl.o.fl. Jamm... skólinn gengur bara svona eins og venjulega held ég...nema stærðfræðin en ég er með þann versta stærðfræðikennara sem ég hef nokkurntímann haft! En það reddast nú vonandi :$

Ég sakna Mörtu svo mikið að ég held að ég eigi bráðum eftir að panta far til Kína! er einhver memm??? En ég fékk pakka og bréf frá henni í gær og hún biður kærlega að heila öllum:haha: ...svo svona til að minna ykkur á þá á ég ammæli næsta miðvikudag..þ.e. 26 sept. ;) hef ekki grænan guðmund um hvað ég á að gera eiginlega til að halda upp á þennan merkisdag...en jæja það er seinnitímavandamál.

Nú og svo hamast maður auðvitað í ræktinni þegar maður hefur tíma og roðnar og svitnar fyrir framan almenning! Ég keypti mér meira að segja bikiní um daginn og hef það markmið að þora í það í byrjun október....en hver veit nema maður fresti því um hálfan mánuð eða svo...:P

Annars held ég að þetta sé bara orðið gott í bili


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.09.2007 15:56:01 / Vafi

Busaball = fyllerí = þynnka

já... það var busaball í Valaskjálf í gær...þar var gaman! Ég og Dagmar fórum með Jón Inga og júlíönu upp í Steinholt þar sem að var alveg slatti af fólki..misfullt:$ Þar var drukkið og fengið sér í nefið (nei ekki ég :haha:) og fengið sér aðeins meira að drekka... Svo fengum við far hjá einhverjum í EGS aftur...nei ég man voða lítið eftir því hjá hverjum við fengum far8| en allavega þá komumst við þangað þar sem að var drukkið enn meira og keypt sér miða á ball... Ballið var nú ekkert spes sko...en alltílagi..lítið af fólki inni...

já og þar sem að ég var alveg að fara að drepast um 2 eða 3 leytið þá fór ég bara heim á vist í fylgd Kára...en gat samt engan veginn sofnað þegar ég varkominn upp á herbergi:frown: fyrr en um 4 ...svo vaknaði ég aftur "fersk" kl 7 og var í einhverri vímu þar til um 9 þegar ég sofnaði aftur...þá vöknuðum við Dagrún við það að Danni, Siggi, Stjáni og einhver sem ég veit ekki hvað heitir komu inn til okkar alveg þvílíkt hressir...ég var ekki hress...en við kvöddum samt Danna okkar sem var að fara til RVK...langt þar til maður sér hann næst örugglega.

Svo örkuðum við Dagrún svona líka hressar alla leið að kirkjugarðsblokkunum hjá Bessa til að sækja bílinn hennar og tókum Júlíönu þunnu með okkur, svo sóttum við Jón inga og Tinnu og skutluðum þeim upp í Steinholt og svo skutlaði dagrún mér heim og ég fór að sofa!

Þar hafiði það forvitnu bavíanar! mjög nákvæm lýsing á gærkvöldinu! Ég kyssti engann og gerði ekkert af mér....þannig lagað...

Ég held ég láti Tópasið vera næst:^) og já Dagmar kyssti einhvern gaur eftir að ég fór :haha: en hún var svo drukkin að hún man hvorki nafn né útlit...;) 


» 12 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 20:41:45 / Vafi

Hver gerði Gerði grikk í sumar?, hver gerði Gerði bomsíbosíbomm...

..því er hún svona þykk í sumar, það er af því að hún er bomsíbomsíbomm!

Jamm og jæja...skólinn byrjaður, haustið að koma og letin að færast yfir mann. Fyrir þá sem vilja vita þá er ég á Félagsfræðibraut þetta árið og í 20 einingum...það er ágætt. Þetta skólaár leggst nokkurnveginn í mig eins og 10 bekkur gerði... enginn glampandi áhugi til að fara að læra, en vonandi tórir maður og nær öllu.

Busun þessa helgi og busaball á föstudaginn, nenni eiginlega Aungvan veginn en býst við að það endi með að maður fari...eða ekki :$

Marta er farin til Kína og hefur ekki heyrst múkk í henni síðan hún fór! Vona bara að hún sé á lífi og skemmti sér vel...við vinkonurnar söknum hennar auðvitað mjög mikið og teljum dagana þangað til að hún kemur aftur á Klakann. Thíhí, ég fór í heimsókn til afa vinkonu minnar um daginn og við vorum e-h að ræða um Mörtu og þá sagði hann "já ætli nýjustu fréttir frá Kína verði ekki að allir kínverjarnir séu komnir með hálsríg" :haha: En þeir sem þekkja Mörtu vita að hún er nú ekki sú lágvaxnasta sem maður finnur :haha;)

Annars hef ég lítið annað að segja, er búin að setja heilar 2 myndir inn á þessa síðu, en netið er svo hægt hérna heima að það verður örugglega einhver bið þar til að þeim fjölgar...

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 20:55:48 / Vafi

jjjjjjiiiii

Úff, skólinn að byrja..ég er ekki að fíla það …hann má byrja eftir svona 3 vikur…bara ekki á morgun, það er of fljótt!

 En já, í þarseinustu viku fór ég með m&p í sumarfrí  rétt hjá Laugavatni sem er rétt hjá þingvallavatni…það var spes…meira verður ekki sagt um það.

 

Svo var ég að koma frá RVK þar sem ég var að kveðja Mörtu :’( Við fórum ég og Auður og Dagmar. Við fórum 3x í bíó á 3 dögum og borðuðum oft Subway. Ég mæli eindregið með að fólk fari ekki á Shrek 3 hún er með eindæmum leiðinleg. Vanilla sky og cats and dogs eru einu myndirnar sem ég hef séð í bíó sem eru leiðinlegri en hún!

Ég keypti MJÖG lítið enda voru systur mínar ekki með mér svo að það er mjög skiljanlegt. En ég keypti mér 2 peysur, 1 buxur 2 boli, 1 bók!!!(ég hef ekki keypt mér bók í…….tja líklega bara aldrei fyrir utan skólabækur)…Man ekki eftir meiru sem ég keypti mér þannig að ég sparaði alveg hellings pjenge sem er nottlega bara ágætt ;) Fer bara bráðlega aftur :D

 Á menningardaginn löbbuðum við frá 11-23 og vorum svo dauðar í löppunum að við fórum bara í bíó ;) en við heyrðum samt alveg slatta af tónleikum…og sáum fullt af einhverju skemmtilegu þarna. Svo fór sunnudagurinn og mánudagurinn bara í búðir, og e-h rölt.

Ég á eftir að sakna Mörtu minnar alveg geggjað mikið og ég held að þetta ár verði mjög erfitt þar sem að við (ég auður og Dagmar) þurfum að fara að hugsa sjálfstætt og þora að tala við fólk( þá á ég við kennara og svona “yfir” fólk). Fjúff!

En já skólinn byrjar á morgun og þá fáum við stundartöflurnar og allt verður í stressi! Mér líka einstaklega illa við allt sem tengist stressi og þess vegna hata ég fyrsta daginn í ME! Ég verð með Dagrúnu minni á herbergi, það verður stuð! Og svo eru auðvitað skólaböllinn í ME æðisleg, OG síðast en ekki síst þá er Begga sys að flytja til EGS í Haust!

Ætli maður fái ekki að passa Sigga litla og Steinar e-h ;) það verður bara stuð!

 

Og já Begga ef þú lest þetta þá er svona hentugra sko að þu flytjir nær ME svo þú fáir oftar barnapössun :P

 Ég er búin að blaðra nóg í bili, sjáumst síðar…

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 23:28:59 / Vafi

dididiriddidí dídídídídí (strumpalagið...er einhver texti?)

jamm....verð víst að blogga fyrst að kobba segir það:$  Ég fór á fjórðungsmótið(hestamót) í lok júní og lenti þar í einhverju sæti (man ekki hvaða) en ég var allavega ekki neðst, þó nokkrir fyrir neðan mig og ég er bara mjög stolt af því! en já svo svaf ég í tjaldi með dagbjörtu, dagrúnu, kobbu og....og...og....freydísi...man það núna;) svo voru lilja og aggi í næsta tjaldi við. Það helsta sem gerðist var að : ég og dagbjört erum ekki góðar í að kvekja í grilli svo að lilja bjargaði okkur :haha:´við fórum á ball, hittum marga mismæta menn þar, ég drakk í hófi eins og venjulega :P en tópas og perubjór var innbyrt þanngað til manni fór að sundla og þá hætti ég...þótt að enginn auður væri :haha: en já...ballið seinna kvöldið var ALLTOF stutt...magni ekki alveg að standa sig...:P

en á daginn þá var ég ritari hjá dómurunum og það er skemmst frá því að segja að það var heitt, of margir geitungar og einn dómarinn var horfði alltaf hjá næsta dómara til að vita hvaða einkunn hann áttti að gefa...8| hann var leiðinlegur...hinir mjög hressir eða amk á balli :haha:

já svo hef ég bara verið að vinna heima og pínu í sumarbúðunum. Begga sys og fjölsk. komu í heimsókn í 2 vikur og minnsti stubbur var skírður, fékk það fína nafn Sigurður Bjarki, Sigurður er eftir afa mínum og bróður og Bjarki út í bláinn....steinar hafði reyndar lítinn áhuga á meðan skírninni stóð en hún var haldin heima, svo að hann var farinn út áður en nafnið var sagt að leika við hvolpana:haha: (hvolparnir reyndust hinar bestu barnapössunarpíur á meðan veislunni stóð, en þeim var keyrt fram og aftur í litla dúkkuvagninum)

já...svo er ég að keppa næstu helgi á stekkhólma á Kára og Eiðu, síðan bara "afslöppun í sveitinni" :haha:

 En annars...ætlar fólk almennt á lunga? annars segi ég bara bless í bili ....


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 15:11:34 / Vafi

Fjóðungsmót 2007!!!

Já ákvað að blogga svona bara fyrir stínu systir sem mér heyrist að sé alveg að fara upp af standinum í þessum hótelbransa :P En já einkennilegt hvað bloggandinn hellist oft yfir mann á einkennilegum tímum, en aldrei þegar maður loksins sest niður og fer í tölvuna!

En já annars hefur lítið verið að gerast sko....ég er að fara að keppa á Fjórðungsmóti austurland(hestamót) á föstudaginn, er ekkert alltof bjartsýn á að það gangi vel þar sem að´maður e að keppa við ´fólk frá Akureyri og Hornafirði og e-h. En það eru ekki nema 26 í mínum flokk, vona að ég verði allavega ekki í seinasta sæti :haha: ...Hver vonar það svosum...

Svo fékk ég lítinn/stóran frænda á  17. júní...algjör krúsídúlla :haha:

Hvolparnir dafna eins og blóm í garði :P er búin að selja 4 af 8 en glemi alveg að auglýsa kanínuungana :S Svo hugsa ég að ég fari að fá 1 sætt folald á næstu vikum, allavega er merin alveg að springa...já það er þín meri kristín. Svo er vafi(sæti litli 2 ára hesturinn minn) búinn að fá 2 merar til sín og 3 fer að koma...gaman af því.....

En já ef einhver er til í að fara á ball með mér á laugadagskvöldið með á Móti sól þá er alveg vel þegið að viðkomandi gefi sig fram með nafni og kennitölu á næstu dögum:haha: ...humm..auður, Kobba?????

segi þetta gott í bili...heyrumst/sjáumst


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 11:34:08 / Vafi

Sumarfrí..

Jæja ég hef verið óvenju löt að blogga upp á síðkastið en þetta er það sem hefur gerts(svona það mesta).

Ég keppti 1. maí og lenti í 4. sæti á Hauki sem hef aldrei áður keppt á en hinn (Kári) var ekki að gera sig svo hann komst ekki einu sinni í úrslit:evil:  svo keppti ég aftur einhverntímann og þá var kári ekkert að nenna þessu þannig að ég lennti í 7. sæti sem er nootlega ömurlegt!  En nú er stefnan tekin á keppni 9. júní og ég fer með Kára Hauk og Eiðu. :D

Ég náði öllum prófunum, og gekk bara mjög vel! svo er ég bara að vinna heima í sumar og skrepp á hestbak oft á dag:haha: Það má með sanni segja að allt sé frjósamt á Hjartarstöðum en sauðburður hefur verið á fullu, ein og ein belja ber með nokkurra daga milli bili, tíkin gaut 8 hvolpum og þeir eru til sölu ef einhver hefur áhuga;) kanínan eignaðist 3 unga sem einnig eru fáanlegir, 1 merin kastar seinna í vor, kötturinn fór fyrir nokkrum dögum og hann var breima svo ap hann kemur örugglega kettlingafullur heim. og síðast en ekki síst þá eignast ég lítinn frænda eftir c.a. 18 daga :haha:

Þar sem að ég er svo óheppin manneskja :$ þá tókst mér fyrir klukkutíma að rífa skinnið af fingurgómnum mínum (langatöng) þegar ég var að teyma meri og hún reif sig lausa :frown: svo er ég með brunablöðru á nokkrum öðrum puttum :P og svo fylgir nottlega sauðburði að vera allur marinn og blár með helling af flísum og sárum þannig að ég get ekki sagt að ég sé upp á mitt besta núna :haha:

en jæja er farinn að gera e-h annað það er vont að skrifa á lyklaborðið..

og já ég er sko aaaaaaaaaaaallls ekki sátt með úrslitin í eurovision keppninni :evil:


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 17:29:41 / Vafi

Ég er á lífi!

og verð það vonandi áfram :| En já það hefur margt drifið á daga mína síðan síðast... en ég enni nú ekkert að segja frá því öllu. Í páskafríinum var næstum bara gert fernt þ.e. Hestbak, borðað, slappað af og hestbak :haha: Svo var reyndar fimmtugsammælið hans pabba haldið í fjósinu...:P það var fínt, hitti fullt af fólki. Svo er maður að reyna að læra e-h af viti.. reyndar voða lítið að læra eins og er  og nei ég er hreint ekki að kvarta!!! svo var ég bara síðustu helgi á hestbaki :D:D:D og keppti á laugardaginn á Iðavöllum..það var mjög gaman, alltaf gaman að hitta þetta ruglaða hesta lið... þar lenti ég já í 3. sæti í unglingaflokki og var bara rosa sátt :D Svo er bara stefnan tekin á næsta mót 14. maí :D  

Annars er lítið að gerast þessa dagana bara próf eftir 2 vikur :S En annars hef ég verið rosa dugleg að hrakfallabálkast upp á síðkastið..:$ Á föstudagskvöldið tognaði ég á þumalputtanum og er ennþá e-h "slöpp" í honum, svo lenti ég í "leik" við kisann minn sem endaði með því að ég er með 2 klóraðar hendur, svo gekk ég á hurð fyrir tæpri viku og er ennþá með mjög auman marblett á hendinni, og svo í íþróttum í dag vorum við í sparkó og ég gat einhvernveginn flækt mig í einum húllahringnum (sem voru notaðir sem stoppistöðvar)þegar ég var að hlaupa og dattfram fyrir mig, á tognaða puttan og er með brunasár á báðum hnjánum.    Þá er hrakafallapistlinum lokið fyrir þessa viku...vonandi :S 

En já vonandi er æstum aðdáendum mínum rórra núna eftir að ég hef bloggað þetta langa og tilgangslausa blogg um mína tilbreytingarlausu daga....sem þótt ótrúlegt sé, ég hef gaman af... þ.e.a.s. þegar ég get komist á hestbak :haha:

En já við segjum þetta gott í bili.....


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3